Bloggsvæði Grunnmenntaskólans 2005-2006
22.04.2007 22:37:59 / bekkur

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar dúllurnar mínar, ég er nú farin að sakna þess að heyra ekkert frá ykkur.

Hérna er búið að vera sól og blíða undanfarna daga, svo ekki þyrfti maður að skella sér til spánar, en ég ætla nú samt að skella mér í sumar til Costa del Sol.:lol: og meira að segja í 3 vikur, ég og stubburinn minn 8)

Ég er að koma suður og fara keppa í blaki (öldunga) :D um næstu helgi, ég skil samt ekki hvað ég er að spá því ég hafði aldrei spilað blak áður en ég flutti til Breiðdalsvíkur. Batnandi fólki er best að lifa segir máltakið.

En hvernig er það hefur ekkert verið hist, eru allir búnir að gleyma skólanum??? ég gleymi ykkur aldrei, þetta var frábært og ég sakna þess enn að vera ekki lengur þarna með ykkur. þið megið alveg láta vita hvað er að frétta af ykkur.

 

Kveðja Selma sveitó


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 18:23:45 / bekkur

Sveitastelpan hún Selma!!!!!

Halló elsku dúllurnar mínar.....

Af mér er allt gott að frétta og ég er mjög ánægð hérna, mikið að gera hjá mér þó svo að það sé nú ekki mikill fiskur sem kemur á land, en ég þarf nú samt að mæta í mína vinnu þrátt fyrir það, svona er að vera yfirmaður(kona):lol: það er búið að vera alveg yndislegt veður hérna, ég hefði ekki trúað þessu því stundum er alveg kolvitlaust veður hérna í kring, en alveg rjómablíða hérna...:o Það hefur ekki snjóað mikið en kom þó aðeins um daginn, en ekki samt það mikið að það yrði allt saman hvítt, það sá í jörð hér og þar.

Ég skrepp stundum á Reyðafjörð eða Egilstaði til að gera stórinnkaup í mat, en það er samt alltaf gott að komast heim aftur:haha:

Ég er að spá í að skreppa á þorrablót í kvöld:lol:, eða sko bara ballið því að þorrablótið hérna í Breiðdal verður ekki fyrr en í febrúar og þá tekur maður allan pakkann, þá meina ég mat, drykk og ball :P

Jæja dúllurnar mínar, vona að þið hafið það eins gott og ég

Kveðja Selma


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 15:19:57 / bekkur

BREIÐDALSVÍK

Hæ hæ, ég er hérna í snjó og roki á Breiðdalsvík, hef það reglulega gott. Mér líkar vel í vinnunni, þó þetta sé ábyrgðarstaða. Ég get alveg hugsað mér að vera hérna í þessi 2 ár eða lengur, en sjáum til með það. Hvernig er það, á ekkert að fara hittast?? ég er nú farin að sakna ykkar, og langar að hitta ykkur aftur. Endilega skrifið hérna á síðuna eða látið í ykkur heyra, mig er farið að langa frétta eitthvað af ykkur..... Knús og kossar Selma sveitastelpa:D

» 7 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 21:39:15 / bekkur

Flutningur!!!

Hæ hvað er að frétta? er búið að vera mikið á ferðinni í sumar?

Ég er að hugsa um að flytja til Breiðdalsvíkur í 1-2 ár, ég var nefnilega að missa vinnuna sem ég er í, og því ekki að breyta til í smá tíma, svo námið verður að bíða um tíma, ég ætlaði að fara í FB og taka 2-3 fög. Kannski að maður stefni á stúdentinn:lol: en hvað um það, smá bið getur ekki skaðað

Ég þarf að leigja íbúðina mína í þennan tíma svo ef þið vitið um gott fólk sem vantar stóra íbúð þá er bara að tala við mig;););)

Ég kem nú hérna inn þó ég sé að flytja landshorna á milli, en endilega ekki gleyma mér þó ég komist kannski ekki í kaffi með ykkur í vetur, sakna ykkar allra

KNÚS OG KOSSAR FRÁ MÉR

Kveðja Selma


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 14:35:06 / bekkur

sumarfrí

Hæ öll. Nú styttist óðum í að ég komist í sumarfrí og skal stefnan tekin austur.Neistaflug heitasta samkoma ársins ég verð þar.Annars er þetta allt að koma og ætla ég að njóta lífsins fyrir austan svo skreppur maður norður og tapar aleigunni í jólahúsinu.kíki á Dalvík og handverksýninguna í Hrafnagili.Við verðum að gera eitthvað skemmtilegt í haust. Bið að heilsa ykkur elskurnar.Og Selma ég er tilraunadýr hjá einum ákveðnum bæklunarlækni hér í bænum.Kær kveðja Hildur Kolbeins.

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 23:36:50 / bekkur

TAKK FYRIR SÍÐAST

Hæ jú gæs, takk fyrir síðast, það var verulega gaman að hitta ykkur, þó það hefði verið meira gaman að fá fleiri en svona er þetta. Ekki á allt kosið, enda fólk kannski farið að fara í sumarfrí. En við gerum svo sannalega tilraun aftur í haust, kannski að við gætum hist einhversstaðar og haldið annað partý, það var svo gaman síðast:lol: Ég átti að skila kveðju til ykkar allra frá Gunnu, hún er ekkert orðin smá brún....... hafið þið farið inn á síðuna hennar og skoðað myndirnar frá henni.

Jæja hef svo sem ekkert að segja meira, eða ætti alla vega að hætta, annars gæti þetta endað með laaaaangri sögu hérna.

Ég er farin að hlakka til að komast í frí, það er svo mikið að gera hjá mér í vinnunni að ég er alveg uppgefin á kvöldin þegar ég kem heim. Það er bara hálfur mánuður í þetta hjá mér. 20, júní :haha::haha::haha:

Jæja nú er ég hætt, knús og kossar til ykkar

Kveðja Selma


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 20:45:59 / bekkur

allir á kaffihús..

Hæ öll.

Ég var að tala við Elínu og við erum byrjaðar að hringja  í ykkur og ætlum að hittast á Kaffi Reykjavík 31 maí  kl 20 . Sirrý, okkur vantar símann hjá þér..Vonandi eru allir með sama símanúmerið svo enginn missi af þessum mannfagnaði.Ef einhver fær ekki símhringingu en sér þetta þá vinsmalega mættu til að hitta okkur hin. Vonast til að sjá sem flesta,bless í bili

mbk. Vilborg.


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 11:01:03 / bekkur

Það er ekkert smá búið að vera kalt!!!!

Það haustaði snemma í vor8|

Jæja hvernig ætli standi á því að það er svona erfitt að finna tíma til að fara í 1-2 tíma á kaffihús, erum við öll svona upptekin:lol: vonandi finnum við tíma fljótlega. Ég er að fara til Lazarote 20. júní og verð í 3 vikur8) hlakka ekkert smá til. Ég dauðöfunda Gunnu að vera á spáni í þessu kuldakasti hérna, Gunna mín þú hugsar til okkar hérna á klakanum er það ekki??:$ Ég verð að fara sjá ykkur, sakna ykkar mjög mikið.....

Jæja nóg í bili:)

Kveðja Selma


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 10:46:38 / bekkur

hæ, hæ

Eigum við að reyna að hittast á mánudaginn 22.maí?

 kv. Vilborg


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 19:03:49 / bekkur

miðvikudagur....

hæ hæ.eigum við ekki að reyna að hittast næsta miðvikudag á kaffi París  

hvað segið þið um það?

mbk. Vilborg


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 22:09:48 / bekkur

Hæ öll

Það væri gaman að hittast öll, en á miðvikudaginn verð ég að vinna og helgina þar á eftir veð ég að snúast í kringum Danina sem ætla að koma til landsins þá, en endilega að reina að hittast, kanski get ég strokið úr vinnuni fyrr.

Kveðja Gulli..


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 20:50:26 / bekkur

Gleðilegt sumar


Hæ öll og gleðilegt sumar.  Mikið er gott að vita af ykkur hérna á spjallrásinni.  Það er allt gott að frétta af mér, ég er komin í sumarskap, og bruna eins oft og ég get upp á Mýrar í búðstaðinn.  Ég tek undir með ykkur að fara að hittast á kaffihúsi, áður en kemur að almennum sumarfríum, hvernig væri á næsta miðvikudag. Við getum byrjað á að hringja í hvort annað og sjá hvort allir geta mætt. Hvernig vaktirnar eru hjá þeim sem vinna vaktavinnu. Látið  endilega vita hvort þið komist, og tillögu að kaffihúsi. Er strx farin að hlakka til að sjá ykkur.  Kveðja Elín.



» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 00:12:49 / bekkur

Hæ öllsömul

Ég er á fullu að sinna þessu höfrunga máli sem ég sagði ykkur frá og er að vinna líka. Kiddi kom til mín ástöðina og fékk sér kaffi með mér. Hann sagðist vera að fara í tölfu nám og hann ætli að fá sér tölfu fljótlega, hann er ekkert farin að vinna enþá, ég lofaði að lát hann hafa síðu nafnið okkar. Reynum að halda sambandinu gangandi. Kveðja Gulli :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 21:50:25 / bekkur

gleðilegt sumar

Hæ öll, alltof langt síðan ég kíkti á síðuna okkar. Allt gott að frétta af mér. Ég var að skoða nýja eflingarblaðið, og það er þessi líka fína mynd af okkur öllum þar.Væri

alveg til í að fara að hitta ykkur, hver ætlar að hafa frumkvæði?;)      

Kv.Vilborg            


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 20:00:13 / bekkur

Sumarið komið

Gleðilegt sumar öllsömul takk fyrir veturinn, verum dugleg að láta heira í okkur. Kveðja gulli...:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Myndasöfn